Klukkan

Auglýsing

Atburðarteljari

Könnun

Á ég að blogga?

Jólablogg..

26. desember 2006 klukkan 04:54
Np; Jeff Who? - Death before disco

Komiði heil og sæl og gleðileg jól! Þá eru víst jólin bara búinn og fólk má fara að henda þessu helvítis jóladóti niður ekki satt? Nei ég segi svona, ætli jólaljósin hjálpi ekki einhverjum í gegnum skammdegis þunglyndið einsog það er kallað eins gott að það hrjáir mig ekki. Mikið hefur hent mig síðan ég bloggaði seinast, já ég vaknaði einmitt kl. 7:30 á aðfangadag til þess eins að klæða mig sem jólasveinn og rúnta um bæjinn og gefa krökkum gjafir. Infact var þetta allveg frábært og á sama tíma skrítið, að krakkar trúi á þetta og að ég hafi trúað á þetta en þetta var algjör snilld. Nokkur hrædd börn ekkert það mörg, kanski svona 3 pínulítil + hann Villi enda fórum við og bönkuðum á gluggana hjá honum og brá honum nú allasvakalega er ég held. Þetta tók um svona 2 og hálfan tíma, komin heim um hálf 12 og svo bara sofið til 4. Svo bara aðfangadagskvöld, og ég ekki í neinu jólastuði, þannig að ég bara reyndi að rífa það upp á seinustu stundu. En það gekk auðvitað ekkert. Fékk nú allveg ágætis jólagjafir, Line 6 210 Spyder magnara, Scott G6 brettagleraugu, utanáliggjandi harðan disk, föt sem að ég nenni engna vegin að telja upp hér, trefil sem að er helvíti nettur, leðurveski, nýju "Kaftein Ofurbrók,, bókina (Y),Family guy 5 seríu, úlpu og svo náttbuxur og eitthvað :) Þannig að ég er bara sáttur sko. Svo má auðvitað ekki gleyma aðalgjöfini en hún kom frá honum Ottó, en það var últrablingað armband frá Ice in a Bucket fyrir gellur of course, hef gefið því heitið "Pussy magnet", en þessi gjöf var auðvitað bara gefin í gríni. En já 25 des í dag, vaknaði kl. 17:30 :$ enda fór ég að sofa uppúr 8 um morgunin þ.e.a.s. eftir að hafa horft á: Borat, Family Guy the movie, The Benchwarmers og Dukes of Hazzard og Lord of the rings 1[Extended version] já. Og svo var ég bara drifin rétt uppúr 6 heim til ömmu og afa í hangikjöt, sem að er örugglega einn besti morgunmatur sem að ég hef fengið lengi, amma kann þetta :) Svo er planið bara að gera ekki neitt í dag og á morgun, en 27. verður svo haldið eitthvað LAN í Þrykkjunni,og stendur það til 30. des. Hvet ykkur öll til að mæta kl svona 2 eða 3, ekkert vera að mæta fyrr efa það að einhver verði vaknaður fyrir þann tíma. Með þessum orðum ætla ég að óska ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, Sigfinnur Björnsson kveður árið 2006.

Sigfinnur Björnsson
7 athugasemdir

Það pirrar mig..

22. desember 2006 klukkan 07:26
Sælt veri fólkið, ákvað að skella inn einni færlsu bara til að skemmta mér. Ekki mikið búið að gerast í dag, fór og verslaði nokkrar jólagjafir, spilaði 2 quake leiki og hékk í Skissu. Enda kallinn búinn að vera í topp 1 í allan dag. En eitt leiðinlegt gerðist í dag, einhver admin í Skissu dróg af mér 100 stig fyrir það eitt að segja asni,
hálviti og fífl, en ég var bara að giska. Enda hafði gaurinn enga teikni talenta. Og eitt annað sem böggar mig mjög mikið í dag þegar maður er að reyna að spila Skissu kl svona 2 - 3 á daginn, þá er allt fullt af litlum smákrökkum sem kunna ekki að teikna. Einn vissi ekki hvernig hann ætti að teikna folald og aðrir kunna ekki að gefa hint. Ég varð mjög pirraður en mér tókst samt að vinna 2 leiki, enda ekki mikill tapari í mér, svo fóru allir afþví að ég vann alltaf þannig að ég fór í quake. Leikur sem að ég elska en ég er bara svo lélegur í honum, það er eiginlega bara fyndið hvað ég er hörmulegur í honum,  og það pirrar mig líka. Það pirrar mig líka að sumir adminar á Skissu eru fávitar ég meina þessi leikur er GEÐVEIKUR en sumir adminar eru nú bara allveg gaga sko. Bönnuðu, spörkuðu honum ekki bara út heldur BÖNNUÐU hann, fyrir það eitt að teikna typpi. Sem kom svo í ljós að væri kerti, en bara léleg mynd hjá greyis drengnum. Ég hlóg mig samt vitlausan af þessari vitleysi og fékk viðvörun. ÞESSI DAGUR ER ÖM!

Hérna er svona smá screenshot til að sýna stöðuna áður en stigin voru dregin af..


Sigfinnur Björnsson
4 athugasemdir

sælir sælir..

21. desember 2006 klukkan 21:32
Np; Jeff Who? - Bipolar Breakdown.

Ákvað að smella inn svo sem einni færslu í tilefni dagsins. Var aðeins að vafra um á netinu áðan og rakst á þessa jú frábæru frétt, já Hornfirðingar lemja víst bara alla sem flytja í bæinn, ekkert flóknara en það. Bara ef að einhver flytur hingað þá bara gefa honum einn gúmorens. Þið getið nálgast fréttina hér. Það er náttúrlega allveg vitað að Hornfirðingar geta verið frekar klikkaðir, en þessar ásakanir eru bara rangar. Afhverju að skrifa þetta þegar þú veist nákvæmlega ekkert um þetta? Mæli einmitt með því að lesa "commentin" þarna, en þau eru frá glöggum slagsmálahundum bæjarins. Ef þið lesið aðeins commentin þarna kemur í ljós að einn af þessum mönnum hafi verið inná Litla Hrauni og nýlega hleypt út, og sá ég líka að það var verið að tala um að hann hafi búið hér áður, ég kem allveg frá fjöllum um þetta mál en samt pirrar mig hvað það þarf alltaf að ýkja allt og gera það kannski einum of öfgakennt. Frá því sem að ég hef heyrt hérna í bænum og lesið í commentum hér og þar þá var þetta pjúra sjálfsvörn og ekkert annað. Þetta er allveg frábær auglýsing fyrir bæjinn finnst ykkur ekki? Og það sem pirrar mig einna mest er titillin á þessari frétt "Óblíðar móttökur fyrir nýaðflutta Hornfirðinga,, Það er eiginlega ein ástæða á bakvið það, ég heyrði nefninlega, las það í bloggi og las comment að einn af þessum mönnum hafi átt heima hér í tæp 3 ár, það er allveg frábært. Þar hitti þessi fréttarita naglan í kálhöfuðið, talandi um að skrifa ömurlega og ósanna frétt, að hann skuli fá borgað fyrir þetta. Og að þetta skuli vera samþykkt af ritstjóra, þar sem engin vitni hafa komið við sögu eða tjáð sig við lögreglu. Já allveg fínt hvað DV fer í taugarnar á mér þessa dagana.

Annað quote úr Family Guy :)

Lois Griffin: You should spend some time with our kids, Peter. And with me.
Peter Griffin: Uh, what could me and you do together?
[Lois giggles]
Peter Griffin: Lois. You've got a sick mind.
Lois Griffin: Peter, I'm talking about making love.
Peter Griffin: Oh. I thought you wanted us to murder the children and harvest their organs for beer money.

Sigfinnur Björnsson
2 athugasemdir

Allt ágætt

21. desember 2006 klukkan 07:45

Vegna iðjuleysar ákvað ég að skella öðru bloggi inn, enda ekki mikið að gerast á mínum bæ. Hef mikið verið að flakka á netinu í dag og rakst einmitt á allveg frábæran leik! Getið nálgast þennan leik hér. Þetta er semsagt einhverskonar 'Pictionary' leikur, bara í rafrænni útgafu. Og má til þess geta að ég er þrefaldur Hornafjarðarmeistari, og allir þessir þrír sigrar bara í dag. Ég skar mig allveg úr hópnum með þessum vitleysingum þarna sem að ég vill ekki nefna hér, einungis vegna öryggis þeirra. Enda er ég allveg viss um að einhverjir myndi ganga í skrokk á þessu fólki fyrir að tapa á móti mér í Skissu. Svo fann ég einmitt aðra frábæra síðu eða http://www.youparklikeanasshole.com/ sem að þýðir á góðri íslensku: Þú leggur einsog fífl. Og svo einnig á lélegri íslensku: Þú leggja einsog asni. En fyrst ég hef ekkert að gera þá ætla ég að kynna hérna tvær blogg síður en það eru síðurnar þeirra Ottós og Hilmars sem að ég á örugglega eftir að vitna oft í í næstu færslum. Enda gerist allt á milli himins og jarðar þar og þá meina ég það. Nýar trúir eru stofnaðar, rasismi gagvart gjelgju og tökuorðum úr ensku. Þetta er allt bara daglegt brauð þar og hvet ég þig til að kíkja þangað. Well, áramótin og jólin á næsta leiti og ætla ég rétt að vona að það verði glens og gaman á öllum heimilium hér í bæ, enda koma þau bara 1 sinni á ári! :'( Og einsog þið kannski vitið líka þá er að koma nýtt ár. You heard me nýtt ár! Þetta ár hefur svo sveimér verið fljótt að líða. Ég meina, ég er búinn að eiga afmæli og allt! En nú hef ég pælt í því að taka upp nýja hefð, eitthvað sem að ég hef aldrei gert áður. Já ég er að spá í að fá mér svona áramótarheiti eða hvað það nú kallast. Og er mitt þá kanski aðallega að mæta betur á fótbolta æfingar og bæta mig í skóla. Hvert er ykkar áramótarheiti? Enda þetta blogg á þessum orðum.

Peter Griffin: Don't worry Chris. Sometimes it's good not to fit in. (Flashback til Vietnam, þegar hann var í stríði.)
Peter (klæddur í trúðabúning.): You guys are stupid. Their gonna be looking for army people.

Vill svo líka minna á http://simnet.is/mp3/mr_motor.html Mister Motor FTW ;)

Sigfinnur Björnsson
2 athugasemdir

Hæ..

21. desember 2006 klukkan 07:17

Np; Cascada - Bad Boy


Jább, ég er að blogga. Who could have guessed? Allavegna þá er allt fínt og frábært hjá mér þessa dagana kominn í jólafrí, er að borða jólakökur og svo er ég líka bara í fríi. Mikið hefur drifið á dagana undanfarnar vikur, prófin, jólaundirbúningur, leti, ægissíða, ég að blogga og allt það. En án ef það þægilegasta af öllu er að vera kominn í frí. Já og svo jólaprófin, þvílíkur léttir að þau séu búinn, reyndar ekki með nógu góðar einkanir en ég laga það seinna. En svo var ég einmitt að fatta eitt í morgun, þetta er seinasta árið mitt í grunnskóla, var bara að fatta að ég væri að fara að taka þessi svokölluðu samræmdupróf og að fara í nýjan skóla. Afhverju verða allir svona ánægðir þegar þeir klára 10 ára skyldunám ef þeir ætla hvorteð er í menntaskóla? Og verð ég að segja að mig hlakki nú ekki svakalega mikið til að fara úr grunnskóla, en samt jú, verður örugglega gaman. En nóg af því, ég ætla nú að tala um mál sem hefur pirrað mig MJÖG lengi, eða frá því að ég hætti að trúa á jólasveininn og tannálfinn. Sko okay, fínt og flott að það komi einhver kall til manns á nóttuni og gefi manni gjafir í skó, en áfallið sem maður verður fyrir þegar maður er yngri og fattar það að jólasveinninn sé ekki til það er allveg gífurlegt. Ég meina afhverju að segja þetta in the first place? Hvað græðir fólk á þessu? Ekki neitt, og það einfaldlega pirrar mig hvað jólaveinar eru farnir að vera útum allt á jólunum. Ekki bara fól sem er að leika jólasveina (Já þú pabbi) en heldur líka jólasveinar sem lýsa, eitthvað svaka dæmi sem maður setur út í garð og sést næstum út um ALLT! Í alvöru þetta pirrar mig svo mikið, kanski er það bara útaf því að ég er enþá bitur yfir því að fá ekki í skóinn eða útaf því að ég fái ekki pening fyrir að setja tönnina undir koddan. Ég er einmitt að fara að leika jólasvein 24 des. og langar mig mikið að taka bara af mér skeggið og öskra á einhverja krakka að jólasveinarnir séu ekki til, en auðvitað geri ég það ekki. En það væri samt helvíti fyndið. Það var einhvervegin í þá áttina að ég fattaði að jólasveinarnir væru ekki til. Komu einmitt til mín 24. des með pakka og allt, og ég geðveikt ánægður og allt. Og ætla svo að fara útí glugga að veifa, þá bara tóku þeir skeggið af sér. Og ég grenjaði og grenjaði og grenjaði og greyis mamma gat ekki huggað mig, enda kolklikkað barn þarna á ferð. Én já útaf mikilli þreytu og bulli þá nenni ég ekki að blogga meira, kanski meira í ´nótt later.

Sigfinnur Björnsson
4 athugasemdir